Hann hefur jafnframt gefið út tónlist undir eigin nafni og unnið við tónlist, leiklist, handrit og hljóðmyndir. Það sem einkennir Unnstein er persónuleg nálgun og mikil nærvera. Atriðið snýst ekki bara um að flytja lög heldur að skapa augnablik og tengingu við salinn. Hann hentar því sérstaklega vel þegar leitað er að tónlistaratriði sem hefur karakter, menningarlegt vægi og eitthvað aðeins óvæntara en hefðbundið veisluatriði. Hvort sem um er að ræða fyrirtækjaviðburð, hátíð, tónleika eða sérstakt tilefni færðu með Unnsteini listamann sem setur sinn eigin svip á kvöldið.